Dimidiochromis compressiceps er stór og falleg síkliða sem finnst í Malawi vatni, en einnig er hún í útrennsli Malawi vatns í ánni Shire sem rennur í Malombe vatn um 19 km frá og líklegast dreyfist hún neðar í ánna sem síðanrennur alla leið í Zambezi ánna í Mósambík
Hængurinn er fallega blár með rautt í uggum en hrygnan eins og seiði og ungfiskar er grá brún með þverrákir, eins og sést á innfelldu myndinni
Þessi tegund er ránfiskur og étur alla fiska sem mögulega komast upp í hann, en er fín með öðrum síkliðum í svipaðri stærð
Sölustærð er 5-7 cm svo ekki er hægt að sjá kyn
Íslensk ræktun